FYRIR réttum tveimur árum var Landbúnaðarháskóli Íslands stofnaður. Þetta var skref sem flestir fögnuðu, enda ástæða til að búa til öflugan skóla á háskólastigi fyrir landbúnaðinn. Það var þó einn hængur á, menn kláruðu ekki málið. Það gleymdist að setja niður framtíð þeirra stofnana sem ekki eru staddar á Hvanneyri. Þar undir fellur Garðyrkjuskólinn á Reykjum, og það sem verra er, fyrir það líður hann.
60 ár í fararbroddi
Garðyrkjuskólinn hefur verið starfræktur á Reykjum í að verða 70 ár. Skólinn hefur verið í fararbroddi allra námstofnana í garðræktun og í raun sú eina. Uppbygging þar á sérhæfðri aðstöðu fyrir kennslu í garð- og plöntustarfsemi hefur verið til fyrirmyndar, þangað til nú. Staðsetning skólans hefur ekki síst um það að segja hversu vel hefur tekist til. Suðurland, að öðrum landshlutum ólöstuðum, og ekki þá síst Hveragerði hefur verið fremst í flokki allra staða í garð- og ylrækt. Sú nálægð hefur auðveldað starf skólans og möguleika þeirra sem stunda garðræktun til að sækja endurmenntanámskeiðin sem þangað til núna hafa verið gríðaröflug og vel sótt.Staðan nú
Það er vægast sagt óhægt að setja eina stofnun í þá gíslingu að ekki er hægt að hreyfa við einu eða neinu. Húsakynnin eru á barmi hruns og þarfnast því sem fyrst lagfæringa. Lítil sem engin endurmenntun fer nú fram á Reykjum. Enginn frá grænageiranum situr sem fulltrúi í háskólaráði landbúnaðarháskólans. Endurskoðunarnefnd um garðyrkjunám er ekki skipuð með hagsmunahópum græna geirans. Og nú stendur til, ef það er ekki þegar búið, að selja hluta jarðarinnar á Reykjum án þess að sá söluhagnaður sé eyrnamerktur skólanum á Reykjum. Næg eru þó verkefnin. Allt virðist þetta benda á einn veg. Skólinn skal fluttur úr kjördæmi landbúnaðarráðherra.Skýr svör
Við krefjumst þess af landbúnaðarráðherra og rektor LBHÍ að þeir báðir svari eftirfarandi spurningum skriflega.1. Hver er staðan í málefnum Garðyrkjuskólans á Reykjum?
2. Verður aðstaða og húsnæði bætt og endurnýjað við Reyki?
3. Verður skólinn áfram á Reykjum?
4. Hver er stefna og framtíðarsýn ráðherra og rektors varðandi garðyrkjunám á Íslandi?
5. Stendur til að selja meira af Reykjarjörðinni og ef þá, hversu mikið og hvaða hluta?
Klárum málið
Það þýðir ekki að vísa alltaf á einhverjar starfsnefndir. Við eigum heimtingu á því, hvort sem við erum nemendur, íbúar svæðisins eða bara áhugamenn um eflingu garðyrkjunáms, að vita hvort ekki verði farið í að laga alla þá aðstöðu sem nú liggur undir skemmdum. Hvort við verðum í námi á Reykjum eða á Hvanneyri. Sem æðstu yfirmenn skólans hljóta menn að vera búnir að mynda sér skoðun, eða taka ákvörðun í þessu máli. Nú er mál að eyða óvissunni, svara þessum spurningum og klára málið.Höfundur er formaður nemendafélags starfsmenntabrauta í garð- og plöntunámi við Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum í Ölfusi.
Tenglar
Planta vikunnar
Betula pendula
Síðurnar sem gera það fyrir mig.
- Friður
- Gralur Vettis
- Björgvin Guðni http://bjorgvin.is
- Jata Kúl
- Hafnarfjarðarbær
- Kátu biskuparnir
- Ujh
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 11311
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
Bækur sem Marrinn mælir með...
-
: Dauðinn og mörgæsin
Verð að lesa meira eftir þennan Kúrkov, vá hvað hann setur upp skemmtilega súrar aðstæður...
-
: Blikkkóngarnir
Þeir sem ekki hafa lesið þessa, hafa ekki uppgötvað húmor.
-
: Taumhald á skepnum
Var að klára hana aftur. Einhver fyndnasta bók sem ég hef lesið...enginn er svikin af strætisvagnabílstjóranum...

aevark
atae
davidge
dofri
gaflari
hallurg
hreinsi
kamilla
mjollin
skonsan
svenni
paradisarfuglinn
gunnaraxel





Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning