Leita í fréttum mbl.is
Embla

Ja..hann setti lögin..hann hefði getað sagt sér þetta þá...

Þetta er maðurinn sem ber ábyrgð á málinu frá upphafi til enda. Það er ekkert annað en eðlilegt að hann reyni núna að skríða inn undir hjá erlendum fjölmiðlum til að friða samviskuna. Það er alveg ljóst að innlendir fjölmiðlar myndu ekki láta sér svona léleg svör nægja, ekki einu sinni mbl. Burt með manninn, hann er ekkert að hjálpa og hefur ekki verið í 14 ár.


mbl.is Davíð: Varaði ítrekað við að bankar væru í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jóla jól...

jóla jól, jóla jól....hver elskar ekki þennan tíma?

Ljóta blogg

Hef verið kaffærður í verkefnum sem ég virðist aldrei ætla að klára...Nú hinsvegar er að koma að prófum, sem er ævintýralegt fyrir þá sem vita lítið og eru illa lesnir um latnesk heiti plantna...en látum það allt vera og fögnum einhverju pólitísku...orðið soldið langt síða maður hefur skrifað um pólitík..

Ég verð að hrósa Gunnari, Lúðvík ásamt bæjarstjórum nágrannasveitarfélaga okkar Hafnfirðinga úr Vogum og Grindavík fyrir að stofna Suðurlindir. Loksins er komið svar við ofurgræðgi orkufyrirtækjanna, nú verður hægt á samráðsvettvangi þessara sveitarfélaga að stjórna því hvar er virkjað og hvar orkan verður nýtt. Ofurhald Reykjanesbæjar á Hitaveitu Suðurnesja ásamt einkavæðingu ríkisins á hlut sínum í HS hefur ýtt þessum sveitarfélögum til þessara stofnunar.

Suðurlindir hlýtur að verða öðrum sveitarfélögum, sem byggja á og við virkjanlegar auðlindir, fordæmi til að gæta hagsmuna sinna, í samfloti, gagnvart orkufyrirtækjunum. Við eigum auðlindirnar, okkar er að verja þær ásamt því að stjórna því í hvað þær eru nýttar. Það er ekki orkufyrirtækjanna.


Fagra blogg

Ég er kominn aftur, harðari, gáfaðri, ferskari, fyndnari en nokkrum sinnum fyrr. Þó ætla ég að halda mig við mjúku línurnar, skrifa eitthvað sem allir skilja á svipuðum nótum og áður án þess að gera grín að öllu. Blogg muzikin er komin á fóninn, við erum bara heppinn að ég er ekki á eyrunum núna, annars...eða eitthvað. Eins og alþjóð veit þá er ég ekki lengur í sambandi...frekar leiðinlegt, en svona er lífið, það eru fleiri fiskar í sjónum, þetta jafnar sig áður en maður giftir sig og þið þekkið þetta allt...hver hefur ekki heyrt þessar áður. Það ætti reyndar að búa til keppni um það hver á bestu ,,hugg" setninguna, hún er hér með farinn af stað.

Annars sækist námið vel og fjármálin illa..eins og kannski hjá flest öllum þeim sem stunda nám og nenna ekki að vinna, eða ,,geta það ekki að því það tekur svo mikinn tíma frá náminu"..hey af hverju nota ég bara ekki þennan tíma sem ég er eyða núna í að skrifa einhverja vitleysu til að vinna inn pening..get bara ekki vitað það..latnesku heitin á plöntunum bíða mín líka við hliðina á mér..svo afhverju ekki að skrifa meira...

Pólitíkin er á fullu þar sem maður er nýkomin úr ,,starfshóp um útboð á aðstöðu fyrir líkamsrækt í sundmiðstöð á Völlum" og er komin í ,,Dómnefnd á tilboðum sem berast í útboði á aðstöðu fyrir líkamsrækt í sundmiðstöðina á Völlum" ...maður ríður nú ekki einteymingi í þessu... Við ungir og þungir jafnaðarmenn erum rétt að jafna okkur eftir einhvern skemmtilegasta aðalfund norðan alpafjalla, þar sem Jón Steinar var glæsilega kosinn formaður...

Þannig byrjar þessi bloggröð, vonandi endist hún...þakka þeim sem lásu 


Get ekki sagt að ég sé svektur!

Loksins einhver almennilega gleðileg frétt frá Reykjavík. Nú er bara að vona að heimildirnar séu réttar. Þetta ætti að kenna yfirgangssegjum íhaldsins að það að vera í samstarfi þýðir samráð. Vonandi kemur nýr meirihluti til með að sýna betri, opnari og umfram allt lýðræðislegri vinnubrögð heldur en bakherbergis stjórnaraðferð íhaldsins. Dagur er nátúrulega frábær fulltrúi lýðræðis og opinnar stjórnsýslu, umfram allt er hann góður jafnaðarmaður. Gleymum svo ekki að hann er hrokkinn hærður og myndarlegur eins og ég ;)
mbl.is Nýr meirihluti myndaður í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jevla....

Það er frekar erfitt að koma sér í bloggírinn, enda ekkert að gerast. Hvað er málið, er þetta málið, flokkurinn manns kemst í ríkistjórn, ræður bænum sem maður býr í...enginn stjórnarandstaða...ég stend orðið í því að réttlæta gjörðir ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem reynist erfitt eftir stjórnarandstöðu gegn þessum flokki alla mína stjórnmálalegu ævi...Nóg um það.....

Það er samt ekki hægt annað en að minnast örlítið á suðurlandsveginn...nú er komin tími til að Möllerinn taki af skarið og lýsi yfir og hefji framkvæmdir á tvöföldun. Ég er nú kannsi enginn sérfræðingur um vegagerðir, umferðarþunga eða slysafjölda á vegum. Það er hinsvegar ólíðandi að hirfa upp á einn veg hirða jafn mörg líf og raun ber vitni. Nú skora ég á mína menn sem og aðra að keyra málið á sotlum hraða...

Annars er að sjálfsögðu fínt að frétta af mér, ég er kominn á kaf í plönturnar og þeirra yndislegu latnesku heiti sem ég verð að segja að hljóti að vera í uppáhaldi hjá mér...þannig nú kemur inn ný planta vikunnar.....planta vikunnar er Vörtubjörkin eða Hengibjörkin 


Fögnum táknrænni yfirlýsingu...

Nú fáið þið kæru lesendur ekki meira frí frá mér í bili. Nú verð ég að taka til máls. Nú ætla ég greinilega að byrja allar setningar á nú.

En ég ætla allavega að byrja á því að fagna framgöngu utanríkisráðherra landsins með því að senda heim NATO sendisvein Íslendinga. Það er fagnaðarefni að draga til baka þann stuðning sem fyrri ríkistjórn sýndi stríðsherrum Breta og Bandaríkjamanna. Nú eins og utanríkisráðherra segir eigum við að einbeita okkur að uppbyggingu í skólamálum, jafnréttismálum og atvinnumálum kvenna í Írak. Það er enginn þörf eða vilji fyrir því að okkar sérfræðiþekking sé nýtt til hernaðaruppbygginga, hvar sem er. Nú er að halda þessu áfram og koma okkur úr hernaðarhlutverki í öðrum ríkjum, hættum að vopna okkar fólk. Nýtum þessa krafta í áðurnefnd verkefni ásamt verefnum tengdum okkar sérþekkingum s.s í orkunýtingum, sjávarútvegi, fjármálstarfsemi???. Og ekki gleyma ,,Ísland úr Nato"

Annars hef ég það bara gott. Kominn úr sumarvinnunni, kominn úr stressinu og kominn í skóla. Nú skal gert betur en síðasta ár, nú skal tekinn metnaður, nú skal sko lært öll kvöld, nú skal ritgerðum skilað langt áður en skilfresti líkur, nú skal mætt og glósað í öllum tímum...ég er búinn eins og öll hin árin að kaupa nýja penna og minnisbók til að skrifa allt þetta í...bíddu hef ég heyrt þetta einhvern tímann áður... 


mbl.is Geir: Hefði ekki kallað starfsmanninn heim
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumarfrí....

Nú er komið að því...þið ágætu lesendur getið fengið sumarfrí frá mér...við garðyrkjumenn höfum hinsvegar svo mikið að gera að ómögulegt er að finna tíma fyrir blogg...kem sterkur inn í haust...þakka þeim sem lásu, lesa og munu lesa...

Afsakið!

Þið verðið að afsaka mig fyrir að blogga ekki í langan tíma. Ég er að reyna að venjast því að vera í samstarfi við Sjálfstæðismenn. Ég reyndar á mjög erfitt með að setja mig í þann gír, með áherslu á mjög. Ég er reyndar stoltur af því að sjá félaga minn Björgvin Guðna vera kominn í ráðuneyti. 

Ég hinsvegar verð að lýsi megnri óánægju með val Ingibjargar úr Suðvesturkjördæmi. Ekki nóg með að gengið hafi verið fram hjá forystumanni Suðvesturkjördæmis, sem fá fordæmi eru fyrir. Þá er gengið með ótrúlegri ósvífni fram hjá Katrínu Júlíusdóttur 2. manneskju á lista. Ég held, og ég þori nánast að fullyrða að þetta hafi ekki verið gert áður. Að 2. efstu sigurvegarar prófkjörs í Suðvesturkjördæmis séu sett til hliðar fyrir manneskju sem er í 3. sæti. Þetta er með ólíkindum. Hvað gengur til? Verður að spyrja.

Gunnar Svavarsson er leiðtogi Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Hann leiddi baráttuna að gríðarlegri hörku og uppskar sama þingmannafjölda og var áður. Hann á óumdeilanlega ásamt Lúðvík Geirssyni stærsta þáttinn í því að Samfylkingin vann hér í Hafnarfirði glæsilega kosningasigra 2002 og 2006. Hann vann svo Þórunni Sveinbjarnardóttur (ný umhverfisráðherra) sem þá var þingmaður í prófkjöri, þrátt fyrir að hafa verið lítið áberandi í landsmálum. Hann eins og allir vita var þá formaður framkvæmdarstjórnar og vann því vel og ötullega að landsmálunum. Það að ganga fram hjá honum er missir fyrir ríkistjórnina og ekki síst fyrir flokkinn.

Katrín Júlíusdóttir er einn af framtíðaleiðtogum Samfylkingarinnar, með glæsilegan feril að baki. Hún var sterkur formaður Ungra jafnaðarmanna á meðan við vorum að slíta barnskónum. Hún hefur verið öflug talskona jafnréttis á allan hátt, sérstaklega til handa þeim sem minna bera úr bítum og þurfa að framfleyta fjölskyldum. Málefni einstæðra foreldra hafa verið hennar mál, þegar ég segi hennar mál þá er það vegna þess að hún hefur verið talskona þess hóps á þinginu. Svo ég tali nú ekki um málefni sprotafyrirtækja. Hún vann svo eftirminnilega glæsilega og óumdeilanlega prófkjör Samfylkingarinnar í Suðvestur. Hún fór fram á 2. sætið og náði því með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða og varð því ofar en Þórunn Sveinbjarnadóttur (ný umhverfisráðherra). Það að ganga fram hjá henni er missir fyrir ríkistjórnina og ekki síst fyrir flokkinn 

Svari nú hver sem getur hvaða rök lágu á bak við valið???


loksins, loksins, loksins...

það var mikið, ég er búinn að bíða, bíða og bíða... nú er það bara Samfó og íhaldið... Samfylkingin verður að vera hörð í viðræðunum við íhaldið... Það má ekki gefa afslátt á velferðarmálunum!!! 
mbl.is Ekki grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Ingimar Ingimarsson
Ingimar Ingimarsson
Nemi í skrúð- garðyrkju og vara- bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 11311

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband